Upphaf að ferðasögu til Svíþjóðar

Heil og sæl..

Hér með hefst ferðasaga okkar hjónaleysanna til Norðurlanda í nám.

Í dag (fimmtudag) kom Valdi til byggða að austan og nú hefst niðurpökkunarhelgin mikla.. Hún hófst á grillveislu hjá Steinunni systur hans Valda í Mosfellsbæ. Það var hrein snilld. Steinunn og Gústi búa í yndislegu húsi við Amsturdam í Mosó.. Þar var grillað og spjallað.. Mikið næs.. Fjölskylda Valda var kvödd með virktum en ég hafði fyrir nokkru kvatt mína fjölskyldu í kaffiboði hjá Pabba og Siggu. Nú fer allt að verða klárt til brottfarar. Við erum búin að fá fína leigjendur fyrir húsið okkar og Kátur er kominn í fína pössun í Ölviholtið þar sem hann hefur tvo litla gutta til að leika við sig alla daga og Jón , nytjajurtabóndi, sér ekki sólina fyrir honum enda er þetta yndislegur hundur.. Svo er þarna vinnufólk sem atast í honum alla daga.. Kátur brosir í hring þessa dagana... Við erum líka komin með húsnæði í Malmö... Hann Sigurður Þór Guðmundsson, mastersnemi, reddaði þessu öllu fyrir okkur svo nú bíður okkar 95 fm. íbúð í Malmö með öllum húsbúnaði.. Jú kostir og gallar.. þetta er leigt á svörtu.... kolsvörtu svo við erum að taka smá séns.. En það er svo erfitt að finna húsnæði í Malmö að við bara skelltum okkur á þetta... Kostir.. rétt staðsetning, rétt stærð, ágætis leiga, engin skriffinnska. Gallar: Indversk kona á þetta og ef þið hafið einhvern tíman séð Indverskar bíómyndir þá getið þið ímyndað ykkur litadýrðina (litaógleðina) og búslóðaglingrið...

En allavega þá verður pakkað og gengið frá málum núna um verslunarmannahelgina og svo verður lagt af stað austur á þriðjudaginn og þar munum við vera í íbúðinni hans Valda fram að brottför með Norrænu 16. ágúst.


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Dúddddaaaaaaa mía..................það verður æðislegt að fylgjast með ykkur súperkrútt.  Gangi ykkur vel að pakka

Tobba (IP-tala skráð) 3.8.2007 kl. 12:14

2 identicon

Gaman að þið eru farin að blogga. Ég fylgist spennt með og gangi ykkur vel að pakka...

Elin (IP-tala skráð) 3.8.2007 kl. 14:18

3 identicon

Frábært að þið skulið vera farin að blogga, þá getur maður fylgst með ykkur hihi Ef það er einhver sem verður duglegur að blogga þá eruð það þið held ég amk...

Halla (IP-tala skráð) 3.8.2007 kl. 23:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband